Tónlistarmaðurinn Justin Bieber varð 21 árs í gær og í tilefni þess hélt hann upp á afmælið á einkaeyju í góðra vina hópi.
Bieber er loksins kominn með aldur til að drekka áfengi í Bandaríkjunum. Hann opnaði því ófáar kampavínsflöskurnar um helgina og drakk af stút.
Heimildamaður TMZ sagði Bieber hafa skemmt sér konunglega um helgina. Bieber birti svo nokkrar ljósmyndir af veisluhöldunum á samfélagsmiðlum.