„Hann klúðraði þessu“

Hilary Duff og Mike Comrie.
Hilary Duff og Mike Comrie. Getty Images

Söng- og leikkonan Hilary Duff fór fram á skilnað frá eiginmanni sínum, Mike Comrie, þegar hún komst að því að hann hefði beðið aðra konu að stunda með sér kynlíf. Comrie mun hafa gert það á matsölustað í janúar.

Hin 27 ára Duff fór fram á skilnað þegar hún heyrði sögur af hegðun eiginmanns síns. „Hún áttaði sig loksins á því að hann myndi aldrei breytast. Hann klúðraði þessu og kaus að lifa lífinu eins og hann væri einhleypur,“ sagði heimildamaður Us Magazine. Heimildamaðurinn sagði frá því að Comrie hefði verið drukkinn þetta kvöld og reynt við þjónustustúlku sem þjónaði honum til borðs. Þjónustustúlkan mun hafa hafnað honum en þá tók Combie upp peninga og henti í aðra konu og bað hana að sofa hjá sér.

Hilary og Comrie eiga tveggja ára son saman. Þau giftu sig árið 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler