Jennifer Lopez segir söngvara og dansara vera bestu elskhugana. Lopez, sem hefur verið með mönnum úr öllum áttum, kveðst finna töluverðan mun á kynlífinu eftir því við hvað bólfélagi hennar starfar.
Lopez hefur verið með þjóninum Ojani Noa, dönsurunum Chris Judd og Casper Smart, söngvaranum Marc Anthony, leikaranum Ben Affleck og tónlistarmanninum P. Diddy svo eitthvað sé nefnt og þeir voru misgóðir í bólinu að mati Lopez. Lopez greindi frá þessu í viðtali sem birtist í Loaded Magazine. „Ég myndi segja söngvarar og dansarar,“ sagði Lopez aðspurð hverjir væru bestu elskhugarnir.
Lopez opnaði sig í viðtalinu og sagði einnig frá þeim áhrifum sem framhjáhald hefur haft á hana. „Ég hef verið í samböndum þar sem framhjáhald kom við sögu. Þér líður eins og þú hafir gert eitthvað rangt, eins og það sé eitthvað að þér. Konur og karlmenn ganga í gegnum þetta, ekki bara konur.“