Kraumur tónlistarsjóður og Hönnunarsjóður Auroru setja upp pop-up borg og bjóða á tónleika á HönnunarMars í ár þar sem fjölmargar hljómsveitir og tónlistarmenn koma fram í porti Hafnarhússins. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru Retro Stefson, Sin Fang og Samaris sem allar hafa fengið Kraumsverðlaun fyrir verk sín. Einnig koma fram Snorri Helgason, Bjartey & Gígja úr YLJU, Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn. Hönnun portsins er í höndum Theresu Himmer og Brynhildar Pálsdóttur.
Uppákoman fer fram laugardagskvöldið þann 14. mars kl. 21. Enginn aðgangseyrir.
Viðburðurinn, sem lýsa mætti sem götupartíi með tónleikum, er stefnumót tónlistar og hönnunar þar sem tónlistarmenn, hönnuðir og arkitektar mætast í pop-up borg framtíðarinnar, segir í fréttatilkynningu. Um er að ræða samvinnuverkefni Kraums tónlistarsjóðs og Hönnunarsjóðs Auroru sem síðustu ár hafa unnið með og að framgangi fjölda íslenskra tónlistarmanna og hönnuða, hérlendis sem erlendis.
Í porti Hafnarhússins er verkefnið Hæg breytileg átt með sýningu á HönnunarMars sem varpar ljósi á íbúðir og hverfi framtíðarinnar, en þetta kvöld umbreytist sýningin í lifandi framtíðarborg þar sem á einni götunni er blásið til partís.