Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er orðin ljóshærð. Kim er með dökkbrúnt hár frá náttúrunnar hendi en hún hefur nú látið aflita það og útkoman er nánast hvítt hár.
Kim, sem þessa stundina er stödd í París á tískuvikunni, er búin að vera á flakki um París í allan dag en í byrjun dags reyndi hún að fela hárið með svartri húfu. Aðdáendur hennar voru þó fljótir að koma auga á ljósa lokka sem komu undan húfunni. Kim tók því af sér húfuna og afhjúpaði hvítt hárið sem hún hafði greitt aftur.
Ljósa hárið fer Kim bara nokkuð vel.