Susan Sarandon hætti með kærastanum

Susan Sarandon og Jonathan Bricklin.
Susan Sarandon og Jonathan Bricklin. Buzz Foto / Rex Features

Leikkonan Susan Sarandon er hætt með kærastanum, hinum 37 ára Jonathan Bricklin. Sarandon, sem er 68 ára, er nú á lausu eftir að hafa verið með Bricklin í fimm ár.

Fregnir herma að þau Sarandon og Bricklin hafi bundið enda á sambandið vegna þess að Sarandon var ekki tilbúin að taka þátt í raunveruleikaþættinum Connected sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni AOL en Bricklin er ein stjarna þáttanna. „Þetta olli mikilli spennu í sambandinu,“ sagði heimildamaður New York Post.

„Það verður sýnt í þættinum þegar Susan hættir með honum vegna þess að hún vill ekki taka þátt í þættinum.“ Heimildamaðurinn greindi þá frá því að parið væri að hugsa málið og væri mögulega bara í pásu. „Þau eru að vinna í þessu.“

Susan Sarandon hefur viðurkennt að samband hennar við Bricklin sé ekki alveg hefðbundið. „Við búum ekki saman. Við erum ekki alveg venjulegt par. Þegar maður er ástfanginn spyr maður ekki um aldur, kyn eða lit.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler