Leikarinn Harrison Ford brotlenti flugvél sinni á golfvelli í gær fyrir utan Los Angeles eftir vélarbilun í einkaflugvél hans.
Ford hafði samband við flugumsjón skömmu eftir að hann lagði af stað frá flugvellinum í Santa Monica. Ford tilkynnti um vélarbilun og bað um að fá að snúa strax við. Hann náði þó ekki aftur á flugvöllinn og nauðlenti harkalega á golfvellinum. Ford, sem er reyndur flugmaður, hlaut ekki lífshættuleg meiðsl.
Upptaka af neyðarkalli Ford birtist á Youtube-síðu TMZ.