Sofnaði á stefnumóti með Madonnu

Boxarinn Mike Tyson sofnaði þegar hann fór í bíó með …
Boxarinn Mike Tyson sofnaði þegar hann fór í bíó með Madonnu. mbl.is/AFP

Fyrrverandi boxarinn Mike Tyson rifjaði upp áhugaverða kvöldstund í spjallþætti Jimmys Kimmels í gær. Hann sagði frá því þegar hann og þáverandi kona hans, Robin Givens, og söngkonan Madonna og þáverandi eiginmaður hennar, Sean Penn, fóru á „double-date“ en ekki vildi betur til en að Tyson sofnaði.

Tyson, Madonna og makar þeirra skelltu sér í bíó á myndina Big Top Pee-Wee árið 1988. Kvöldið átti að vera skemmtilegt en Tyson man ekki mikið eftir því þar sem hann steinsofnaði.

„Við sáum Big Top með Pee Wee Herman. Við vorum auðvitað með mökum okkar. Þetta var á níunda áratugnum. Hún var gift Sean og ég var líka í hjónabandi. Ég og Sean sofnuðum yfir myndinni.“

Tyson segir að áfengisdrykkju hafi verið um að kenna. „Við kunnum vel að meta Pee Wee en við vorum nokkuð ölvaðir,“ útskýrði Tyson. „Ég hef ekki hugmynd, ég svaf næstum því allan tímann,“ sagði Tyson aðspurður hvort Madonna hefði líka dottað.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant