Fékk nálgunarbann á sinn fyrrverandi

Pamela Anderson ásamt syni sínum
Pamela Anderson ásamt syni sínum AFP

Bandaríska leikkonan Pamela Anderson fékk í gær dæmt tímabundið nálgunarbann á fyrrverandi eiginmann sinn, pókerspilarann Rick Salomon.

Anderson fór fram á skilnað við Salomon í febrúar og samkvæmt dómsskjölum segir hún að vegna ítrekaðs ofbeldis hans þá óttist hún um öryggi sitt. Nefnir hún sem dæmi að í janúar hafi hann haldið púða yfir andliti hennar á meðan þau höfðu kynmök og reynt að kæfa hana, að því er segir í frétt People tímaritsins.

Hún segir að þegar Salomon er reiður þá kalli hann hana öllum illum nöfnum, eins og dræsu, ljóta gamla tík, krakkhóru ofl.

Að sögn Anderson hefur hann sent henni alls konar hótanir í tölvupósti og smáskilaboðum. Eins nektarmyndir af henni sem hún óttast að hann sendi á fleiri.

Anderson og Salomon gengu fyrst í hjónaband árið 2007 og fór hún fram á að það yrði ógilt tveimur mánuðum síðar. Þau tóku síðan saman á nýjan leik nokkrum árum síðar og gengu í hjónaband á ný í janúar 2014. Hálfu ári síðar fór Anderson fram á skilnað en í ágúst 2014 bað hún dómara um að hunsa beiðni sína um skilnað.

Pamela Anderson
Pamela Anderson AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson