Kvikmyndin Frozen nýtur enn gríðarlegra vinsælda þrátt fyrir að hafa komið út árið 2013. Því er eflaust ekki að undra að afar raunverulegar útgáfur af prinsessunum Önnu og Elsu sem listamaðurinn Jirka Väätäinen bjó til hafi vakið gríðarlega athygli.
Myndirnar eru hluti af listaverkaröð sem hann kallar „Real Life Disney“ en sú inniheldur einnig myndir af afar raunverulegri Jane úr Tarzan, Öskubusku, Úrsúlu úr Litlu hafmeyjunni og fleiri skemmtilegum persónum.
Princess Anna from Frozen
Posted by Jirka Väätäinen Design on Sunday, March 22, 2015