Hefur ekki farið í ræktina í tvö ár

Kylie Jenner hefur brennandi áhuga á tísku en gefur líkamsrækt …
Kylie Jenner hefur brennandi áhuga á tísku en gefur líkamsrækt ekki mikinn gaum. AFP

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner viðurkenndi á dögunum að hún hefur ekki farið í ræktina í um tvö ár. Jenner greindi þá frá því að hún ætlaði að byrja að stunda líkamsrækt á næstunni þar sem hún óttast að hún muni þyngjast með aldrinum.

„Ég hef ekki farið í ræktina í um tvö ár. Þetta er mjög slæmt. Ég ætla að byrja í þessum mánuði. Ég þarf að gera það, heilsunnar vegna. Mér finnst eins og allur maturinn sem ég borða sé byrjaður að hafa meiri áhrif á mig eftir því sem ég eldist.“

Jenner kvaðst þá finna fyrir miklum þrýstingi að líta vel út öllum stundum sökum frægðarinnar. „Ég er klárlega meðvituð um það. Þetta er ógnandi, að þurfa alltaf að líta vel út,“ útskýrði Jenner sem fær hjálp frá stílistanum Monicu Rose við að klæða sig upp daglega. „Við tölum saman og finnum út úr þessu í sameiningu. Það er mjög gaman.“ Þessu var greint frá á Contactmusic.com.

En Jenner fær ekki aðeins innblástur frá stílistanum sínum þegar hún klæðir sig upp. „Ég er hrifin af stíl Kim [Kardashian] og Kanye [West]. En North [West] veitir mér mestan innblástur.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson