Harry Styles brast í grát á tónleikum

Harry Styles brast í grát á tónleikum í gær.
Harry Styles brast í grát á tónleikum í gær. AFP

Söngvarinn Harry Styles brast í grát á fyrstu tónleikum One Direction eftir að Zayn Malik tilkynnti umheiminum að hann væri hættur í hjómsveitinni.

Hljómsveitin var á tónleikum í Indónesíu þegar Styles brast í grát, hinir meðlimir hljómsveitarinnar héldu áfram að syngja. Styles gerði enga tilraun til að fela tilfinningar sínar heldur þerraði tárin og reyndi að jafna sig.

Zayn Malik tilkynnti í gær að hann væri hættur í hljómsveitinni. „Líf mitt með One Directi­on hef­ur verið meira en ég gat nokk­urn tíma ímyndað mér. En eft­ir fimm ár finnst mér að nú sé rétti tím­inn fyr­ir mig að hætta í sveit­inni. Ég vil biðja aðdá­end­ur af­sök­unn­ar ef ég hef brugðist ein­hverj­um en ég verð að gera það sem mér virðist rétt í hjarta mér. Ég er að hætta af því að ég vil vera venju­leg­ur 22 ára ein­stak­ling­ur sem get­ur slappað af og átt einka­líf utan kast­ljóss­ins. Ég veit að ég á fjóra vini fyr­ir lífstíð í Lou­is, Liam, Harry og Niall. Ég veit að þeir munu halda áfram að vera besta hljóm­sveit í heimi,“ sagði í tilkynningunni.

Hætt­ur í One Directi­on

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson