Hefði getað orðið fórnarlamb Bills Cosby

Þáttastjórnandinn og grínistinn Chelsea Handler.
Þáttastjórnandinn og grínistinn Chelsea Handler. mbl.is/AFP

Grínistinn Chelsea Handler rifjaði nýverið upp í viðtali við tímaritið Esquire skrýtið atvik sem hún upplifði með leikaranum Bill Cosby þegar þau voru bæði stödd á sama hótelinu í Atlantic City.   

Handler lýsti því þegar Cosby bauð henni að koma upp á herbergi til sín en þau þekktust ekkert á þeim tíma. Atvikið átti sér stað fyrir áratug.

„Þetta var klukkan svona þrjú um dag, starfsmaður hótelsins kom til mín og sagði: „Heyrðu, herra Cosby vill endilega hitta þig uppi á hótelherbergi hjá sér.“ Ég sagði: „Það er skrýtið. Ég vil ekki fara ein... ég þekki hann ekki.“ Þannig að þeir þrír menn sem ég var með, guði sé lof, komu með mér,“ útskýrði Handler sem fékk þrjá samstarfsfélaga sína til að slást í för með sér.

Handler kvaðst hafa verið búin að gleyma þessu en einn vinur hennar sem fór með henni upp á herbergi til Cosby á sínum tíma minnti hana á atvikið. „Halló. Þú hefðir getað orðið eitt af fórnarlömbum hans,“ mun vinur Handler hafa sagði við hana.

Rúmlega 20 konur hafa stigið fram á seinustu mánuðum og sakað Cosby um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi. Cosby heldur fram sakleysi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson