Sigurður heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur

Frá vinstri: Sigurður Sigurðsson, heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2015, Þorsteinn G. …
Frá vinstri: Sigurður Sigurðsson, heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2015, Þorsteinn G. Gunnarsson frá Blúshátíð og Birgir Baldursson trommuleikari.

Við setningu Blúshátíðar í Reykjavík í dag var Sigurður Sigurðsson, munnhörpuleikari og söngvari, útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur.

Sigurður hefur verið áberandi í íslenskri blústónlist áratugum saman, að því er segir í fréttatilkynningu. Hann söng og blés í munnhörpu með hljómsveitinni Kentár sem stofnuð var árið 1982 og þá er hann meðlimur í Tregasveitinni þeirri goðsagnakenndu blúshljómsveit, einn af stofnendum Blues Akademíunar og hefur spilað með fjöldi hljómsveita og tónlistarmanna, bæði á tónleikum og plötum.

Sigurður kemur fram með Blúshljómsveit Björgvins Gíslasonar á fyrstu stórtónleikum Blúshátíðar í Reykjavík, næstkomandi þriðjudagskvöld. Alls verða þrennir stórtónleikar Blúshátíðar á Hilton Reykjavík Nordica í dymbilvikunni, á  þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld (skírdagskvöld).

Blúshátíðin í ár er tileinkuð Muddy Waters og Willie Dixon, en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu þeirra.

Aðalgestir hátíðarinnar eru:

Bob Margolin, blúsgítarleikari ársins 2005 og 2008.

Debbie Davis, blúsgítarleikari ársins 1997 og 2010.

Bob Stroger, bassaleikari ársins 2011 og 2013.

KK band, Björgvin Gíslason og Vintage Caravan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant