Nýjasta kvikmyndin um njósnarann ráðríka James Bond kemur út í nóvember á þessu ári. Mun kvikmyndin bera nafnið Spectre, í höfuðið á glæpahring sem Bond hefur áður verið að eltast við. Nú hefur verið gefin út fyrsta stikla myndarinnar og ljóst er að aðdáendur njósnarans mega vera mjög spenntir.
Daniel Craig fer með aðalhlutverkið í myndinni á móti leikkonunni Monicu Belucci. Leikarinn Christoph Waltz fer með hlutverk vonda kallsins.