Hefur ekki talað við móður sína í sjö ár

Tónlistamaðurinn Elton John er ekki í neinu sambandi við aldraða …
Tónlistamaðurinn Elton John er ekki í neinu sambandi við aldraða móður sína. AFP

Móðir tónlistarmannsins Eltons Johns, Sheila Farebrother, greindi frá því í viðtali við Daily Mail að hún hefði ekki talað við son sinn í sjö ár vegna rifrildis sem snerist um fyrrverandi umboðsmann söngvarans, John Reid.

„Mér til mikillar undrunar sagðist hann hata mig. Og hann skellti á mig símanum. Ímyndið ykkur, ég er móðir hans,“ sagði Farebrother sem nýverið varð 90 ára.

Farebrother sagði þá frá því að hún teldi að sonur hennar væri nú mögulega tilbúinn að fyrirgefa henni vegna þess að hann sendi henni stærðarinnar blómvönd á afmælisdaginn. Hún er einnig tilbúin að grafa stríðsexina en hún vill þó ekkert með unnusta sonar síns, David Furnish, gera. „Furnish vill ekki vera með mér og ég vil svo sannarlega ekki vera með honum,“ útskýrði Farebrother sem hefur enn ekki hitt syni Eltons Johns og Davids Furnish. Þá kvaðst hún ekki vita af því að barn númer þrjú væri á leiðinni.

„Mér var aldrei sagt að hann ætlaði að eignast barn með hjálp staðgöngumóður. Það kom mér á óvart. Ég vissi ekki að hann ætti son fyrr en ég las um það í blöðunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson