Er ekki með neitt tískuvit

Leikkonan Rebel Wilson.
Leikkonan Rebel Wilson. AFP

Leikkonan Rebel Wilson er ekki með neitt tískuvit að eigin sögn en henni líður samt eins og hún sé tískufyrirmynd að einhverju leiti.

Wilson segist vita til þess að konur í yfirþyngd líti upp til hennar þegar kemur að tísku. „Ég er þessi stelpa sem er ekki með neitt tískuvit, en ég er að komast inn í þetta núna. Þetta er að verða mér mikilvægt. Ég veit að konur eru farnar að taka eftir því hvernig ég klæði mig,“ sagði leikkonan í viðtali við ELLE.

Wilson kvaðst þá vera í ákveðinni ábyrgðarstöðu vegna þess að það eru fáar konur í Hollywood með sama vaxtarlag og hún.  

Wilson er í yfirþyngd en hún kveðst lifa heilsusamlegum lífstíl. „Maður þarf að búa yfir líkamlegum styrk þegar maður er í þessum bransa. Það þarf gott úthald til að vinna í 16 klukkustundir á dag. Ég borða kannski mikið en ég er heilbrigð.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson