Gerði grín að kynleiðréttingu Bruce Jenners

Jamie Foxx sló ekki í gegn á iHeartRadio Music-hátíðinni þegar …
Jamie Foxx sló ekki í gegn á iHeartRadio Music-hátíðinni þegar hann gerði grín af kynleiðréttingu Bruce Jenner. AFP

Leikarinn Jamie Foxx gerði grín að kynleiðréttingu ólympíufarans Bruce Jenners þegar hann kom fram á Iheart Radio Music-verðlaunahátíðinni. Brandarinn féll ekki vel í kramið hjá fjölskyldu Bruce Jenners en sonur hans, Burt Jenner, lét Foxx heyra það í viðtali við TMZ.

Burt fannst ósmekklegt af Foxx að gera grín að kynleiðréttingunni og sagði Foxx einfaldlega vera bitran vegna þess að hann væri ekki að fá nein hlutverk í kvikmyndum.

Þá lýsti Burt einnig yfir óánægju sinni með leikarann Kevin Hart sem hefur líka gert grín að kynleiðréttingu Bruce Jenners. Hart skaut nýverið á ólympíufarann á uppistandi þegar dóttir Bruce, Kendall Jenner, var viðstödd.

„Hann má gera grín að pabba eins og hann vill en hann má ekki gera það fyrir framan systur mína og gera hana vandræðalega. Ég hefði stokkið upp á svið. Ef öryggisverðir hefðu stoppað mig af þá hefði ég hent einhverju í hann,“ sagði Burt sem var greinilega heitt í hamsi yfir öllu saman.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson