Of sæt til að leika venjulega stelpu

Leikkonan Sofia Vergara er með mikið sjálfstraust.
Leikkonan Sofia Vergara er með mikið sjálfstraust. AFP

Sjálfstraustið hjá leikkonunni Sofiu Vergara er greinilega í góðu lagi því hún telur sig líta of vel út til að leika „venjulega stelpu“.

„Ég veit að það hjálpar að vera vel vaxinn þegar maður vill vekja á sér athygli og landa hlutverkum í sjónvarpi. En það þýðir líka að maður getur ekki fengið eðlileg hlutverk. Ég get ekki leikið venjulega stelpu,“ sagði leikkonan í viðtali við The Sun.

„Þess vegna reyni ég að finna hlutverk sem leyfa mér að ýta undir útlitið og þróa ferilinn þannig,“ útskýrði hin 42 ára Vergara.

Vergara er himinlifandi með útlitið í dag en þegar hún van unglingur kunni hún ekki að meta alla þá athygli sem hún fékk. „Þegar ég var unglingur var ég grönn og með stór brjóst. Allir störðu og auðvitað eltust allir karlmenn við mann. Mér var létt þegar ég kynntist fyrsta eiginmanni mínum og þess vegna þurfti ég ekki að takast á við eins mikla athygli frá öðrum,“ sagði Vergara sem giftist fyrst þegar hún var 18 ára gömul.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson