Tina Knowles, móðir söngkonunnar Beyoncé, gekk í það heilaga um helgina. Athöfnin fór fram á snekkju og brúðkaupsgestum var gert að klæðast hvítu. Sjálf klæddist Tina hvítum síðkjól frá Romona Keveza og brúðguminn, Richars Lawson, klæddist hvítum jakkafötum. Í gær birti Beyoncé svo ljósmynd af brúðhjónunum sem tekin var á stóra deginum.
Ljósmyndin, sem tekin var af ljósmyndaranum Cliff Watts, birtist á heimasíðu Beyoncé. Á myndinni má sjá brúðhjónin stilla sér upp með kampavín í hönd.
Beyoncé hefur enn ekki birt myndir af gestum veislunnar en fregnir herma að veislan hafi verið fámenn.
Þetta er í annað sinn sem Tina Knowles gengur í það heilaga en áður var hún gift föður Beyoncé, Mathew Knowles. Þau skildu árið 2011 eftir 30 ára hjónaband.
Móðir Beyoncé gifti sig um helgina