Fréttakona ESPN missti stjórn á skapi sínu

Fréttakonan Britt McHenry vissi af öryggismyndavélinni en hélt samt áfram …
Fréttakonan Britt McHenry vissi af öryggismyndavélinni en hélt samt áfram að niðurlægja starfsmann bílageymslunnar. youtube.com

Britt McHenry, fréttakona sjónvarpsstöðvarinnar ESPN, hellti sér nýverið yfir starfsmann bílageymslu þegar hún sótti bíl sinn sem hafði verið dreginn. McHenry var greinilega ósátt við að þurfa að borga til að leysa bílinn út og lét saklausan starfsmanninn heyra það.

Atvikið náðist á myndband og upptökunni var lekið á netið. McHenry hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir framkomu sína en hún sendi frá sér afsökunarbeiðni í gær. Hún kvaðst hafa verið undir álagi og þess vegna misst stjórn á skapi sínu.

Á upptökunni má heyra McHenry hella sér yfir afgreiðslukonu bílageymslunnar á illkvittin hátt. Hún segir hana heimska og ómenntaða og gefur þar að auki í skyn að hún sé ófríð og of feit. „Ef það vantaði í mig nokkrar tennur þá fengi ég kannski vinnu hérna? Ég er í sjónvarpi og þú ert í fjandans hjólhýsi elskan,“ má heyra sjónvarpskonuna segja.

Samkvæmt heimildum NY Post var McHenry vikið tímabundið úr starfi þegar myndbandið fór á flug á netinu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson