Það er ekki annað hægt en að dást að yfirvegun kattar sem verður fyrir yfirdrifinni athygli hóps hvolpa. Dýrin búa í Brasilíu.
Kötturinn lætur sér fátt um finnast þegar hvolparnir hópast að honum, sleikja eyru hans, klifra upp á bak hans og narta í hann af því er virðist einskærri forvitni og ástúð. Kisi sparkar reyndar í einn þeirra. En hreyfir sig hvergi. Holdafar hans gæti verið ástæðan fyrir því að hann leggur ekki á flótta.
Myndskeiðið má sjá hér að neðan.
Aprenda a ser mais tolerante!Que seja uma semana de muita paciência e tolerância!Revista FisioBrasil
Posted by Revista FisioBrasil on Sunday, December 14, 2014