Louis Tomlinson veður í kvenfólki

Kvennagullið Louis Tomlinson er í hljómsveitinni One Direction.
Kvennagullið Louis Tomlinson er í hljómsveitinni One Direction. AFP

One Direction-stjarnan Louis Tomlinson virðist vera kominn á séns en hann sást yfirgefa skemmtistaðinn Cirque le Soir í London á miðvikudaginn ásamt dularfullri ljósku. Tomlinson og fyrrverandi kærasta hans, Eleanor Calder, hættu saman í seinasta mánuði og síðan þá hefur söngvarinn verið undir smásjá slúðurblaðanna.

Tomlinson og ljóskan yfirgáfu skemmtistaðinn um klukkan fjögur um nóttina og stukku saman upp í leigubíl. Heimildamaður Daily Mirror segir kvöldið hafa verið „villt“. „Þetta var mjög villt kvöld. Louis var með sinn eigin bás og fékk fría drykki allt kvöldið. Hann var með sinn eigin öryggisvörð og gat því sleppt sér. Hann er í miklu stuði fyrir skemmtanalífið þessa stundina, hann ætlar að njóta þess að vera einhleypur.“

Samkvæmt heimildum Daily Mirror tók Tomlinson ljóskuna með sér heim en bauð svo vinum sínum og fleiri konum í eftirpartý á heimili sitt. Partýið var búið klukkan sjö um morguninn en ekki ert vitað hvort að ljóskan hafi yfirgefið heimili Tomlinson þá ásamt öðrum partýgestum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tomlinson sést með nýrri konu eftir að hann hætti með kærustunni því hann sást nýverið kyssa unga stúlku um miðjan dag og sú stelpa er sögð vera dóttir hönnuðarins Alexander Julian.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson