Eitt vinsælasta myndbandið á Youtube

Óskar Arnarson.
Óskar Arnarson. Mynd/Óskar

Í gærkvöldi ákvað Óskar Arnarson að útbúa stutt grínmyndband þar sem hann skeytti saman broti úr nýjustu Star Wars stiklunni við atriði úr myndinni Interstellar. Svo fór hann að sofa og vonaðist eftir að myndbrotið myndi mögulega skemmta nokkur hundruð manns. Þegar þessi frétt er skrifuð eru áhorfendurnir orðnir tæplega 800 þúsund og myndbandið er ofarlega á lista yfir vinsælustu myndböndin þessa stundina á YouTube.

Frá 400 í tæplega 800 þúsund á einni klukkustund

Þegar Óskar vaknaði í dag voru mörg þúsund búnir að sjá myndbandið hans og eftir því sem leið á daginn fjölgaði þeim stöðugt. Margir af stærstu fréttamiðlum heims hafa fjallað um málið auk fjölmargra kvikmyndasíðna, en sjálfur telur Óskar að vinsældirnar megi rekja til þess að einhver setti tengil á myndbandið á Reddit tenglasíðuna.

Þegar blaðamaður kíkti á myndbandið fyrir um klukkustund síðan voru tæplega 400 þúsund búnir að sjá myndbandið, en þegar þetta er skrifað eru þeir orðnir 776 þúsund. Það er því ljóst að Óskar hefur skapað sannkallaðan internetsmell.

Í samtali við mbl.is segir Óskar að hann gæti trúað að tímasetningin á birtingunni hafi spilað stórt hlutverk í vinsældum myndbandsins, en úti í Bandaríkjunum er núna stór Star Wars ráðstefna og þá var stiklan frumsýnd í gær. Það sé því mikill skriðþungi með öllu sem tengist kvikmyndinni. 

Hugmyndin fæddist í sturtunni

Aðspurður hvernig hann hafi fengið hugmyndina að myndbandinu segir Óskar að eins og með flestar góðar hugmyndir hjá sér hafi hann fengið hana í sturtunni. Eftir það hafi hann bara sest niður og sett þetta saman á skömmum tíma. „Þegar ég vaknaði í morgun og leit á símann hélt ég að heimurinn væri að farast,“ segir Óskar léttur í bragði, en skilaboðum á Twitter of Facebook hefur rignt yfir hann í allan dag.

Sjálfur er Óskar lærður kvikmyndagerðamaður frá Kvikmyndaskóla Íslands, en rekur í dag Auglýsingastofuna 99. Hann segist hafa gert nokkur grín myndbönd gegnum tíðina en að þetta sé að slá öll met. 

Myndbandið vinsæla má sjá hér að neðan.

Myndbandið er meðal þeirra vinsælustu á Youtube þessa stundina.
Myndbandið er meðal þeirra vinsælustu á Youtube þessa stundina. Mynd/Youtube
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson