Grínmyndband sem Óskar Arnarson, kvikmyndagerðarmaður, setti inn á Youtube í gær heldur áfram að trekkja að, en nú hafa 4 milljónir horft á það og eykst fjöldinn um hundrað þúsund með stuttu millibili. Það er því ljóst að fólk víðsvegar um heiminn kann heldur betur að meta kímni Óskars.
Mbl.is sagði frá því í gær að myndbandið hefði náð talsverðum vinsældum og að áhorfendur væru orðnir tæplega 800 þúsund á einum sólarhring. Síðan þá hafa vinsældir þess margfaldast og á þeim rúma hálfa sólarhring sem liðinn er frá síðustu frétt hafa rúmlega 3 milljónir bæst við áhorfendaskarann.
Í myndbandinu skeytir Óskar saman broti úr nýjustu Star Wars stiklunni við atriði úr myndinni Interstellar og virðist það hitta vel í mark.