Kylie Jenner birti í dag myndir á instagram-síðu sinni þar sem hún frumsýnir nýjustu hárgreiðsluna sína. Hefur hún ákveðið að lita hárið bleikt og skartar hún þeirri greiðslu klædd í nærföt á fallegum sólpalli.
Hin 17 ára Kylie er mikill áhugamaður um hárgreiðslur og hefur hún meðal annars gefið út eigin hárlengingarlínu sem hægt er að kaupa í verslunum.
Jenner var gestur á Coachella-hátíðinni um síðustu helgi þar sem það vakti athygli að með henni í för var rapparinn Tyga. Þau hafa áður opinberað ást sína, en ekki hafa birst margar myndir af þeim skötuhjúunum saman.
<div> <div></div> </div><a href="https://instagram.com/p/1mXjoTnGpb/" target="_top">Tonight</a>
A photo posted by Kylizzle (@kyliejenner) on Apr 17, 2015 at 7:27pm PDT
<a href="https://instagram.com/p/1mXjoTnGpb/" target="_top">Tonight</a>
A photo posted by Kylizzle (@kyliejenner) on Apr 17, 2015 at 7:27pm PDT