Íhuga að kaupa gamla heimili Madonnu

David og Victoria Beckham hafa verið að skoða hús í …
David og Victoria Beckham hafa verið að skoða hús í Los Angeles. AFP

Beckham-hjónin David og Victoria eru sögð vera á höttunum eftir nýju heimili. Það hús sem kemur helst til greina er gamla heimilið hennar Madonnu í Los Angeles.

Samkvæmt heimildum The Sun skoðuðu David og Victoria húsið ásamt börnum sínum. Húsið hefur að geyma 15 baðherbergi, bíósal, gestahús og tveggja hæða borðstofu svo eitthvað sé nefnt.

Madonna keypti húsið árið 2003 á 1,7 milljarða króna. Madonna bjó í húsinu í tíu ár áður en hún seldi það á 2,8 milljarða.

Heimildamaður The Sun segir fjölskylduna vera afar hrifna af eigninni. „Þetta er eitt af nokkrum húsum sem þau hafa skoðað en þetta er í uppáhaldi.“

Ásett verð er sagt vera í kringum 3,9 milljarða króna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson