Stærsti maður Brasilíu fann ástina

Joelison Fernandes da Silva, stærsti maður Brasilíu fann ástina.
Joelison Fernandes da Silva, stærsti maður Brasilíu fann ástina.

Joelison Fernandes da Silva, stærsti maður Brasilíu, hefur alla tíð verið efins um að hann myndi einhvern tímann finna ástina. Silva, sem er 2,3 metrar á hæð, kveðst alltaf hafa verið með lítið sjálfstraust sökum stærðar sinnar en í dag líður honum vel í eigin skinni enda er hann ástfanginn.

Silva er 28 ára gamall. Hann hætti ungur í skóla vegna þess að hann þoldi ekki alla athyglina sem hann fékk. „Mér fannst ég vera óeðlilegur,“ sagði Silva í viðtali við Barcroft TVEn í dag er Silva allt annar maður. Silva er kominn með konu og er ástfanginn upp fyrir haus. Kærastan heitir Evem Medeiros og er 1,52 sentimetrar á hæð. „Ég held að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn,“ sagði Silva.

Skötuhjúin segja fólk vera afar forvitið um ástarlíf þeirra. „Margt fólk talar um skóstærð mína og spyr mig út í hversu stór „félagi“ minn er. Ástarlíf okkar er eðlilegt. Við aðlögum okkur,“ útskýrði Silva.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson