Leikkonan Cobie Smulders greindist með krabbamein í eggjastokkunum árið 2007 en þá var hún 25 ára gömul. Þessu greindi Smulders frá í viðtali við Women‘s Health.
Þegar Smulders greindist með krabbamein var hún í miðjum tökum á gamanþáttunum How I Met Your Mother. „Ég lét fjarlægja æxli og báða eggjastokkana, krabbameinið hafði breiðst út,“ sagði leikkonan sem þurfti að gangast undir nokkrar aðgerðir á tveggja ára tímabili. Eftir stóð einn þriðji af öðrum eggjastokknum. Læknar vöruðu hana við því að hún gæti mögulega ekki eignast barn á eðlilegan hátt en Smulders og eiginmaður hennar, Taran Killam, eignuðust sitt fyrsta barn árið 2009. Barn númer tvö kom svo í heiminn fyrr á þessu ári.
Smulders segir þessa lífsreynslu hafa haft mikil áhrif á sig. „Ég held að ég verði aldrei alveg laus við krabbameinið. Ég reyni að hugsa jákvætt og læra af reynslunni. Og ef ég get vakið fólk til umhugsunar þá mun ég gera það.“