„Ég er kona“

Bruce Jenner í opinskáu viðtali við Diane Sawyer.
Bruce Jenner í opinskáu viðtali við Diane Sawyer. youtube.com

Bruce Jenner, faðir Jenner systranna og stjúpfaðir Kardashian systranna, var gestur Diane Sawyer á ABC sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi. Jenner, sem er 65 ára, hefur undanfarna mánuði verið í kynleiðréttingu. Hún hefur hingað til ekki rætt þessi mál opinberlega og alls ekki við fjölmiðla. Í gærkvöldi rauf Jenner þögnina og talaði í fyrsta skipti  opinberlega um kynleiðréttinguna. 

Í viðtalinu sagði Jenner að hún væri bara hún og vildi alls ekki meina að hún væri föst í einhvers annars líkama. „Heilinn í mér er miklu meira eins og í konu en í manni. Fyrir þá sem vilja vita það þá er ég kona,“ sagði Jenner í viðtalinu. 

Jenner sagði að fólk horfði öðrum augum á sig en áður en fyrst og fremst væri hún kona, ekki einhver ægilegur karl. 

Bruce Jenner hefur verið virkur þátttakandi í raunveruleikaþætti Kardashian systranna, Keeping Up With the Kardashians. „Við ætlum að breyta heiminum,“ sagði hún í viðtalinu við Sawyer. 

Bruce Jenner og Kris Jenner voru gift í 23 ár.
Bruce Jenner og Kris Jenner voru gift í 23 ár. AFP
Bruce Jenner ásamt dætrum sínum.
Bruce Jenner ásamt dætrum sínum. Instagram
Bruce Jenner.
Bruce Jenner. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson