Fékk hár sent í pósti

Raunveruleikastjarnan Kris Jenner.
Raunveruleikastjarnan Kris Jenner. AFP

Lífið er ekki alltaf dans á rósum hjá Kardashian-Jenner-fjölskyldunni og það þekkir raunveruleikastjarnan Kris Jenner vel. Jenner réð nýverið tvo vopnaða öryggisverði í vinnu til að vakta heimili sitt vegna þess að henni hefur borist skrýtnar sendingar í pósti undanfarið.

Í nýjasta þættinum af Keeping Up With The Kardashians má sjá Kris Jenner útskýra fyrir dóttur sinni, Khloe Kardashian, hvers vegna hún ákvað að auka við öryggisgæsluna.

„Ég þarf vernd. Ég get ekki slakað á. Ég er á nálum allan daginn og fæ kvíðaköst,“ sagði Kris Jenner þegar dóttir hennar reyndi að róa hana niður.

Meðal þess sem Kris Jenner hefur fengið sent heim til sín er hár í kassa. Khloe gerði lítið úr málinu. „Einhver sendi henni hár í kassa, sú manneskja var nógu almennileg til að senda 40 pítsur í leiðinni. Taktu bara við gjöfinni en sendu hárið til baka. Þú þarft ekki að ráða tvo vopnaða menn í vinnu til að fylgjast með þinni eigin lóð.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson