Þann 12. september næstkomandi verður leikritið Í hjarta Hróa hattar frumsýnt í Þjóðleikhúsinu. Verkið er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Vesturports en höfundur verksins er David Farr. Gísli Örn Garðarsson og Selma Björnsdóttir munu leikstýra verkinu í sameiningu. Tónlistinn verður frumsamin og flutt af Sölku Sól. Verkið hefur nú þegar slegið í gegn beggja vegna Atlantshafsins. Í leikritinu er heppilegra að gleyma öllu sem þú þykist vita um Hróa hött því það verður öllu snúið á hvolf í verkinu.
Þórir Sæmundsson verður Hrói höttur í stykkinu.