Hefur ekki farið á stefnumót í fjögur ár

Það eru eflaust margar konur þarna úti sem væri til …
Það eru eflaust margar konur þarna úti sem væri til í að komast á stefnumót með leikaranum Colin Farrell. AFP

Leikarinn Colin Farrell hefur verið kenndur við konur á borð við Angelinu Jolie, Britney Spears og Lindsay Lohan í gegnum tíðina en Farrell hefur víst verið rólegur í kvennamálum undanfarið því hann hefur ekki farið á stefnumót í fjögur ár.

Farrell, sem á tvo syni á aldrinum 5 til 11 ára, segir vinnuna og fjölskylduna eiga hug sinn allan þessa stundina „Ég hef verið góður strákur. Það er engin [kona í lífi mínu]. Ég hef ekki farið á stefnumót í fjögur ár. Það er bara ekkert að gerast,“ útskýrði Farrell í viðtali við tímaritið Style. „Þetta er kannski ekki það sem fólk bjóst við að heyra, en þetta er sannleikurinn.“

Farrell lifið eitt sinn villtum lífstíl en eftir að hann eignaðist börn róaðist hann. „Þegar maður á börn þá snúast hlutirnir ekki bara um sjálfan þig lengur. Þetta snýst um einhverja stærri veröld og að hjálpa börnunum að finna sig í henni.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson