Tveir aðdáendur Stjörnustríðsmyndanna og áhugastjörnufræðingar sendu líkan af X-vængju upp í heiðhvolfið með GoPro-myndavél til að reyna að sannfæra leikstjóra nýjustu myndarinnar sem verður frumsýnd í desember um að gefa þeim miða á hana. Engum sögum fer af viðbrögðum hans en myndirnar úr fluginu eru hins vegar glæsilegar.
Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að mennirnir tveir hafi fest X-vængjuna við helíumloftbelg sem þeir sendu svo upp í rúmlega 36.000 metra (118.000 feta) hæð. Verkefnið tók um sex mánuði í undirbúningi og kostaði þá um 1.200 pund, töluvert mikið meira en verð miða í kvikmyndahús.
Tæknilega komst X-vængjan aldrei alla leið út í geim, mörkin á milli lofthjúps jarðar og geimsins eru í um hundrað kílómetra hæð yfir yfirborði jarðar, en á meðfylgjandi myndskeiði lítur líkanið þó út fyrir að svífa vængjum þöndum í svörtu tóminu.