Leikarinn Jake Gyllenhaal var gestur Ellen DeGeneres í gær. Þar greindi hann frá því að hann væri einhleypur og þá trylltist salurinn.
Gyllenhaal þykir fjallmyndarlegur og því kom engum á óvart þegar áhorfendur þáttarins fögnuðu ákaft þegar Gyllenhaal sagðist vera einhleypur þessa stundina.
Ellen spurði leikarann fallega út í stefnumót í framhaldinu. „Eitt af því sem ég geri alltaf, ég fer með þær heim til mömmu á fyrsta stefnumóti. Ég held að það virki vel,“ sagði Gyllenhaal í gríni. „Algjörlega, ég myndi treysta móður minni,“ sagði leikarinn svo aðspurður hvort hann myndi taka mark á móður sinni í leit sinni að kærustu.