Ætlar að selja kynlífsmyndbandið á uppboði

Courtney Stodden heldur áfram að hneyksla.
Courtney Stodden heldur áfram að hneyksla. en.wikipedia.org

Fregnir herma að raunveruleikastjarnan Courtney Stodden hafi nýverið gert kynlífsmyndband sem hún ætli að selja á uppboði til hæstbjóðanda.

Hin tvítuga Stodden er þekktust fyrir að hafa gifst hinum 51 árs leikara Doug Hutchison þegar hún var 16 ára gömul. Stodden virðist ætla að halda áfram að hneyksla því hún er sögð hafa gert svæsið kynlífsmyndband.

Samkvæmt heimildum TMZ er Steven Hirsch, eig­andi klám­mynda­fyr­ir­tæk­is­ins Vi­vid Entertain­ment, með umsjá yfir myndbandinu núna og Hirsch segir Stodden vera „æðislega“ í því. „Þetta er ein einstakasta upptaka sem ég hef á ævi minni séð.“ En myndbandið verður víst bara fyrir útvalda sem eru tilbúnir að borga nógu mikið.

Klám­mynda­fyr­ir­tæk­ið Vi­vid Entertain­ment hefur gefið út nokkur kynlífsmyndbönd með frægum, meðal annars með Kim Kardashian og Pamelu Anderson. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson