Vonn og Woods hætt saman

Lindsey og Tiger Woods.
Lindsey og Tiger Woods. AFP

Skíðakonan Lindsey Vonn og kylfingurinn Tiger Woods eru hætt saman. Vonn tilkynnti  sambandsslitin á Facebook-síðu sinni. Hún sagði að þau væru bæði mjög upptekin í sínu lífi og að það hefði orðið til þess þau hefðu ekki getað eytt miklum tíma saman. Hún sagði að Woods og fjölskylda hans „myndi alltaf eiga sérstakan stað í hjarta“ sínu.

Vonn og Tiger sögðu opinberlega frá sambandi sínu á samfélagsmiðlum í mars árið 2013. 

Woods hefur enn ekki tjáð sig um sambandsslitin, segir í frétt AP-fréttastofunnar.

Woods fór til Ítalíu í janúar og varð þar vitni að því er Vonn sló heimsmet. Hún hefur einnig oft horft á hann keppa á golfmótum.

Tiger Woods og Lindsey Vonn á golfvelli saman í apríl.
Tiger Woods og Lindsey Vonn á golfvelli saman í apríl. AFP
Tiger Woods mætti á keppni sem Vonn tók þátt í …
Tiger Woods mætti á keppni sem Vonn tók þátt í í febrúar í Colorado. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant