Ryan Gosling borðar morgunkornið sitt

Ryan Gosling borðar loks morgunkornið sitt og heiðrar með því …
Ryan Gosling borðar loks morgunkornið sitt og heiðrar með því minningu látins manns AFP

Ryan Gosling hefur ákveðið að borða morgunkornið sitt. Tók hann upp myndbandsklippu þar sem hann sést láta kornflex í skál, hella mjólk yfir það og borða. Þetta gerði hann til að heiðra minningu Ryan McHenry en hann varð frægur fyrir vine-klippur sem sýndu Gosling neita að borða morgunkornið sitt.

McHenry gerði þessar klippur til að leggja áherslu á baráttu sína við krabbamein en hann lést um helgina, 27 ára gamall. Gosling átti engan þátt í klippunum sem McHenry bjó til en þegar hann frétti að McHenry væri látinn bjó hann til eigin klippu, til heiðurs manninum sem tapað baráttunni við krabbamein.

Gosling sendi fjölskyldu McHenry samúðarkveðjur og sagðist vera heppinn að hafa átt smá hlut í lífi hans. McHenry fékk hugmyndina að sínum klippum þegar hann horfði á Gosling í myndinni Drive en hann var að borða morgunkorn á meðan hann horfði. Þá datt honum í hug að hann gæti haldið skeiðinni við skjáinn sem myndi líta út eins og stjarnan væri að neita að borða morgunkornið.

 Hér er Gosling að borða kornflexið:

Hér eru brot sem McHenry gerði, þar sem Gosling neitar að borða morgunkornið:

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant