Slétt sama um aldursmuninn

Átta árum munar á þeim Kylie Jenner og Tyga
Átta árum munar á þeim Kylie Jenner og Tyga AFP

Samband raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner við rapparann Tyga hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Átta ára aldursmunur er á parinu, Jenner er sautján ára gömul en Tyga er á sínu 26. aldursári. Rapparinn er hins vegar lítið að velta sér upp úr aldursbilinu, og þeirri staðreynd að Jenner er undir átján ára, ef marka má frétt slúðurfréttaveitunnar TMZ. Þar bendir hann á að hún sé sérdeilis þroskuð miðað við aldur, enda vellauðug og með eigin rekstur, auk þess sem hún festi nýlega kaup á glæsihýsi fyrir 2,7 milljónir Bandaríkjadala.

Þá segist Tyga að lokum vera „slétt sama“ um viðhorf löggjafans til sambandsins og telur ekkert athugavert við að vera í sambandi við þroskaðan sautján ára einstakling. Samkvæmt TMZ aðhefst bandaríska lögreglan ekkert í málum af þessu tagi að eigin frumkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson