Fyrrverandi kærastinn var fljótur að finna ástina

Leikkonan Suki Waterhouse og leikarinn Bradley Cooper hættu saman í …
Leikkonan Suki Waterhouse og leikarinn Bradley Cooper hættu saman í mars. mbl.is/AFP

Leikkonan Suki Waterhouse og leikarinn Bradley Cooper hættu saman í mars en Cooper var fljótur að jafna sig og nældi sér í nýja skvísu á mettíma. Nýja kærastan er engin önnur en rússneska ofurfyrirsætan Irina Shayk. Waterhouse er sögð miður sín yfir því hversu fljótur Cooper var að jafna sig.

Hin 23 ára Waterhouse er sögð vera steinhissa á Cooper en þau voru saman í tvö ár. Waterhouse skammast sín þegar hún les fréttir af fyrrverandi kærastanum sem hefur ítrekað sést á stefnumótum með rússnesku fyrirsætunni síðan í mars. Innst inni vonaði hún að þau myndu byrja aftur saman samkvæmt heimildum Star Magazine.

„Hann elskar fyrirsætur og þær elska hann. Hann nær ótrúlega vel til Irinu. Hann hefur aldrei laðast jafn mikið að einni konu,“ sagði heimildamaður Life&Style.

Bradley Cooper og Irina Shayk eru sögð eiga í ástarsambandi.
Bradley Cooper og Irina Shayk eru sögð eiga í ástarsambandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson