Patrick Dempsey er ekki hættur í leiklistinni

Patrick Dempsey er ekki hættur að leika.
Patrick Dempsey er ekki hættur að leika. AFP

Hjartaknúsarinn Patrick Dempsey kom mörgum á óvart í seinasta mánuði þegar hann tilkynnti að hann myndi ekki leika áfram í læknaþáttunum Grey's Anatomy eftir 11 þáttaraðir.

Aðdáendur Dempseys spáðu því margir að hann myndi nú gefa leiklistina upp á bátinn og einbeita sér alfarið að kappakstri þar sem hann hefur undanfarið náð góðum árangri í þeirri grein. Dempsey fullyrðir þó að hann ætli að halda áfram að taka að sér hlutverk í þáttum og kvikmyndum.

Frá þessu greindi hann þar sem hann var staddur á Indianapolis 500-kappakstrinum á sunnudaginn í viðtali við tímaritið People. Hann sagðist vissulega elska kappaksturinn en leiklistin væri sér einnig mikilvæg.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson