A$AP Rocky hraunar yfir Ritu Ora í nýju lagi

Rapparinn A$AP Rocky hefur ekkert fallegt um Ritu Ora að …
Rapparinn A$AP Rocky hefur ekkert fallegt um Ritu Ora að segja í hans nýjasta lagi. AFP

Rapparinn A$AP Rocky lætur söngkonuna Ritu Ora heyra það í sínu nýjasta lagi, Better Things, sem kom út í fyrradag. Ekki er vitað af hverju rapparanum er svona illa við Ora en í laginu kallar hann hana „tík“ nokkrum sinnum og segir hana vera kjaftfora.

Aðdáendur A$AP Rocky og Ora eru margir hverjir hissa á nýja laginu og velta vöngum á samfélagsmiðlum yfir því hvað gæti hafa orðið til þess að rapparinn samdi textann. Hvorki Ora né A$AP Rocky hafa tjáð sig opinberlega um textann. 

Lagið Better Things kom út óvænt á þriðjudaginn. Í meðfylgjandi myndbandi má heyra texta A$AP Rocky sem vakið hefur mikla athygli.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant