Hefur aldrei skipt um bleyju

Simon Cowell hefur aldrei skipt á syni sínum sem er …
Simon Cowell hefur aldrei skipt á syni sínum sem er 15 mánaða gamall. FRED PROUSER

Eric Philip, sonur tónlistarmógúlsins Simon Cowell, er orðinn rúmlega eins árs en Cowell hefur aldrei skipt á drengnum. „Ég hef ekki enn skipt um bleyju, en ég elska að vera pabbi,“ sagði Simon í viðtali við tímaritið Hello!

„Ég bjóst aldrei við að verða faðir, en ég elska það. Eric kemur mér til að hlæja. Samskipti okkar eru mjög góð því við kunnum að meta sömu hlutina,“ útskýrði Cowell og tók Scooby Doo, Disney-kvikmyndir og hunda sem dæmi.

Kærasta Cowell, Lauren Silverman, segir fjölskyldulífið ganga eins og í sögu. „Hús Cowell er heimili núna. Ég á þrjá stráka, að honum [Cowell] meðtöldum,“ sagði Silverman sem á einn son frá fyrra hjónabandi.

Silverman og Cowell íhuga nú að stækka fjölskylduna enn frekar. „Það væri frábært að eiga tvö, og já, ég væri til í að eiga litla stelpu,“ sagði Cowell.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant