Talsmenn tískuhúss Marc Jacobs hafa nú gefið frá sér tilkynningu þess efnis að hin 69 ára söngkona Cher sé þeirra nýjasta andlit.
Cher er stjarna haust/vetrar-herferðar Marc Jacobs fyrir árið 2015. Þetta var tilkynnt á Instagram-síðu tískuhússins í gær. „Þetta er aðeins byrjunin. Það er von á meiru,“ stóð meðal annars fyrir neðan myndina sem birtist á Instagram.
Cher mætti á Met Gala-ballið í New York fyrr í þessum mánuði ásamt hönnuðinum Marc Jacobs og þá komst sá orðrómur á kreik að þau væru að vinna saman að einhverju verkefni.
Cher tekur sig afar vel út á myndunum sem ljósmyndarinn David Sims tók fyrir herferðina.