Hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio vakti athygli á götum New York-borgar á þriðjudaginn þegar hann gekk um og myndaði sjálfan sig með hjálp „selfie-stick“.
DiCaprio er nánast óþekkjanlegur þessa dagana en hann hefur bætt töluvert á sig á undanförnum mánuðum og skartar nú myndarlegu alskeggi. En naskir ljósmyndarar komu auga á leikarann vinsæla og mynduðu hann þar sem hann mundaði „selfie-stick“ eða löngustöng eins og það kallast gjarnan á íslensku.
DiCaprio hefur þó enn ekki birt myndirnar sem hann tók þennan dag á samfélagsmiðlum.