Hefur alrei átt einnar nætur gaman

Söngkonan Paloma Faith er rómantísk.
Söngkonan Paloma Faith er rómantísk. AFP

Söngkonan Paloma Faith viðurkenndi nýverið að hafa aldrei átt einnar nætur gaman. Núna þegar hún er orðin 33 ára sér hún eftir því að hafa aldrei látið verða að því að stunda kynlíf með ókunnugum án þess að stofna til ástarsambands.

Faith kveðst trúa á ástina og kýs langtímasambönd fram yfir skammlíf ástarsambönd. Söngkonan hefur verið í sambandi í tvö ár núna og virðist vera hamingjusöm þrátt fyrir smá eftirsjá.

„Ég hef aldrei átt einnar nætur gaman. Ég hef alltaf haft þá rómantísku hugmynd að ástin sigri allt. Núna skil ég að ég hef þarfir og það er ekkert að því að svala þeim,“ sagði hin rómantíska Faith í viðtali við breska Cosmopolitan. „Þegar ég lít til baka sé ég að ég átti stundum í löngum samböndum sem hefðu bara átt að endast eina kvöldstund.“

„Ég er svo ástfangin. Ég hef verið með kærastanum mínum í tvö ár og ég hef aldrei verið ennþá ástfangin eftir svo langan tíma. Kannski er ég vandlát.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant