Hundsuðu hvort annað í partýi

Miley Cyrus og Patrick Schwarzenegger hættu saman í apríl.
Miley Cyrus og Patrick Schwarzenegger hættu saman í apríl. AFP

Miley Cyrus og Patrick Schwarzenegger hættu saman fyrir um mánuði síðan þegar sá orðrómur komst á kreik að Schwarzenegger hafi haldið framhjá söngkonunni. Síðan sambandið fór í vaskinn hafa þau forðast hvort annað eins og heitan eldinn en á föstudaginn rákust þau óvart á hvort annað.

Þegar Cyrus og Schwarzenegger mættu í sama afmælisboðið á föstudaginn fóru þau bæði í kleinu samkvæmt sjónarvottum. Það var athafnamaðurinn Merkus Molanari sem átti afmæli þetta kvöld og hvorki nér Cyrus né Schwarzenegger létu sig vanta. Þau hundsuðu hvort annað og stemmningin var afar vandræðaleg að sögn heimildamanns Us Weekly.

Cyrus hékk svo með söngkonunni Katy Perry það sem eftir lifið kvölds á meðan Schwarzenegger vingaðist við nýtt fólk.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant