Allir hafa tjáð sig nema Kris Jenner

Kris Jenner hefur ekki tjáð sig opinberlega um nýjasta tölublað …
Kris Jenner hefur ekki tjáð sig opinberlega um nýjasta tölublað Vanity Fair en Caitlyn Jenner prýðir forsíðu þess.

Netheimar loguðu í gær þegar forsíða Vanity Fair af Caitlyn Jenner, sem áður var Bruce Jenner, var afhjúpuð. Það virðast allir hafa skoðun á útliti hennar og flestir samgleðjast, meðal annars börnin hennar. En Kris Jenner, fyrrverandi eiginkona hennar, hefur ekki tjáð sig um málið.

Caitlyn Jenner gekkst nýverið undir kynleiðréttingu og prýðir nú forsíðu nýjasta tölublaðs Vanity Fair, inni í blaðinu má finna viðtal við hana þar talar hún meðan annars um hjónabandið við Kris sem var ekki alltaf dans á rósum. Dætur Caitlyn Jenner hafa birt myndir af forsíðunni á samfélagsmiðlum og lýst yfir stuðningi sínum við hana en ekkert hefur heyrst frá Kris.

Kris var virk á samfélagsmiðlum í gær en minntist aldrei á nýjasta tölublað Vanity Fair og sumir vilja meina að hún sé ósátt við innihald viðtalsins. Í blaðinu má þó einnig finna viðtal við Kris sjálfa þar sem hún fær tækifæri á að koma sínu á framfæri. Það segir hún að Bruce Jenner hafi virkað mjög óhamingjusamur á seinni árum og þess vegna hafi hjónabandið ekki gengið upp.

Get the Porsche out the damn garage. #Caitlyn

A photo posted by Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) on Jun 1, 2015 at 3:00pm PDT

My angel on earth! #caitlyn

A photo posted by King Kylie (@kyliejenner) on Jun 1, 2015 at 11:05am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson