Fylgdist með gleðigöngu í New York

Caitlyn Jenner.
Caitlyn Jenner.

Ólympíufarinn og raunveruleikastjarnan Caitlyn Jenner vakti mikla athygli í gleðigöngu í New York í gær. Jenner uppskar mikil fagnaðarlæti og naut athyglinnar sem hún fékk frá viðstöddum.

Jenner fylgdist með gleðigöngunni frá svölum Dream Downtown-hótelsins í New York ásamt sex vinkonum sínum. Þegar viðstaddir komu auga á hana uppskar hún mikið lófaklapp og fólk kallaði nafn hennar. Þá stóð hún upp og veifaði aðdáendum sínum.

Það byrjuðu allir að hrópa: „Caitlyn, Caitlyn!“ Hún stóð upp, veifaði og brosti,“ sagði heimildamaður E! News. „Svo tók hún nokkrar sjálfsmyndir.“

Caitlyn Jenner, áður þekkt sem Bruce Jenner, hefur verið frekar hlédræg síðan hún gekkst undir kynleiðréttingu en hún virtist njóta athyglinnar sem hún fékk í gær að söng viðstaddra.

Caitlyn mun hafa verið stödd í New York við tökur á þáttunum I Am Cait sem verða frumsýndir í lok júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson