Keypti tónleikamiða fyrir aðdáendur sína

Söngkonan Taylor Swift.
Söngkonan Taylor Swift. mbl.is/AFP

Söngkonan Taylor Swift gladdi aðdáendur sína svo sannarlega á dögunum. Aðdáandinn Stephanie Be og kærasti hennar lentu í þeim hremmingum að flugi þeirra frá Hollandi til Englands var seinkað um níu klukkustundir með þeim afleiðingum að parið missti af tónleikum Swift sem haldnir voru á laugardaginn í London.

Stephanie Be birti skilaboð á Twitter og lýsti yfir óánægju sinni með flugfélagið sem hún átti í viðskiptum við. Swift sá skilaboðin og svaraði Stephanie Be.

„Mér þykir leitt að heyra þetta, ef þú kemst til Dublin þá skal ég kaupa miða handa þér,“ skrifaði söngkonan meðal annars.

Stephanie Be og kærastinn fóru beinustu leið til Dublin og fengu miða á tónleika Swift í boði söngkonunnar. Á tónleikunum hélt parið á skilti sem á stóð: „Taylor, ég komst. Takk fyrir miðana“.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson